Hér finnur þú fullkomnun!

Tinna og Sóley

03.09.2008 14:25:59 / Tinna

http://123.is/flugfreyjur

Hæhæ!
Í gær hittumst við nokkrar úr Fluffuni og ætluðum í poker og bjór en pókerinn var aldrei spilaður haha og endaði bara með hörku fylleríi hérna hjá okkur Klöru! Vorum held ég 7 stelpur..
Svo mættum við þunnar í skólan í morgun og það var hlegið smá að okkur....
Svo var kosning í morgun. Ásta tók að sér að vera Formaður némendafélagsins.. Og svo átti að kjósa 3 í viðbót og ég fékk flest atkvæði múahaha! Það er örugglega bara af því ég er alltaf svo full;)
Núna erum við Klara að fara að baka fyrir innflutningspartýið sem er á laugardaginn og svo ætlum við að baka grænmetispizzu í kvöldmatinn..
Á morgun er svo frí í skólanum.. Veit ekki af hverju;)
Svo á föstudeginum erum við allar að fara að borða á Lang Best og fá okkur salat mm:D
En ég vil endilega benda ykkur á að kíkja á
http://123.is/flugfreyjur og fylgjast með okkur.
Segjum þetta gott í bilii.
Tinna.

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.08.2008 15:17:09 / Tinna

Allt of mikil drykkja..

Halló!
Núna er alveg heill hellingur að frétta:)
Ég bý í Keflavík núna með Klöru sætu! Erum að verða búnar að búa hérna í viku og erum búnar að koma okkur rosalega vel fyrir:D Líður rosalega vel hérna!
Ég baka í gær súkkulaðiköku fyrir Klöru og gestina:D Og í kvöld er ég að fara að elda súpukjöt og svona handa okkur:D Er að verða rosalega heimilisleg. Erum bara 1 sinni búnar að fá okkur skyndibit..
Svo byrjar skólinn eftir viku og erum rosa spenntar yfir því.
Á föstudaginn vorum við með matarboð og Ellen, Halla, Heiða, Inga Birna og Edda Rós komu og vorum við með kjúkling! Svo enduðum við Klara bara á hörku djammi;)
Fimmtudagurinn var 1. nóttin okkar hérna og við vorum hálf stressaðar þannig við fengum okkur bjór. Og enduðum haugafullar kl. 5 um nóttina híhí:D
Á laugardaginn var menninganótt og ég fór til Ellenar og þar voru allar stelpurnar. Var kjúlli og pizza í boði. Rosalega flott allt:D
OG það endaði með hörku djammi haha:D
 Í gær fengum við okkur bjór og hvítvín .. Og það endaði með fyllerí til 5 í nótt híhí.. Svo er bjórkvöld Dominos í kvöld.. Maður hugsar málið.. Held að ég beili bara á það og hafi það kósí hérna heima.
Jæja.. Við heyrumst seinna :)
Sóley! Vertu duglegri að blogga!!!!
 Kveðja Tinna;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.07.2008 20:12:13 / Tinna

Tinna mklu duglegri að blogga en Sóley!!

Hæhæ!!
Ég er varla að nenna að blogga..
En já það er allt gott að frétta..
Ég hætti í fullu starfi í skóbúðinni í lok ágúst þar sem skólinn byrjar 1.september.
Ég er komin með meðleigjanda Í keflavík.
 Klara sæta ætlar að leigja með mér. Erum saman í 3. herbergja íbúð - 110 fermetrar:) Party party:)

Í fyrradag litaði ég á mér hárið dökkt:) Liturinn hét súkkulaðibrúnn hehhe=) Fór auðvitað til systir Steina, ekki hægt að treysta neinum öðrum fyrir svona hlutum! =)

Seinustu helgi fór allur vinahópurinn saman í útileigu á Langbrók - vorum um 20 manns.
Rosa gaman, endalaust drukkið.
Því miður var Sigga svo rosalega dugleg að taka myndir að þið fáið engar myndir!!

Jæja ég ætla að reyna að læra að kveikja á þessu sjónvarpi!!
Verið blesS!!
Tinna.

» 1 hafa sagt sína skoðun

07.07.2008 22:20:41 / Tinna

Keflavík!

Halló!!
Í dag fékk ég símhringinu frá Keflavík.... ;)
Ég komst inn í Keilir í Flugþjónanám og er komin með íbúð í Keflavík - 2.herbergja:D Ég er ógeðslega ánægð með þetta :D :D :D :D Flyt til Keflavíkur í heilt ár:D:D:D:D Til Sóleyjar minnar :*
Ég hlakka svo til ! Er að farast úr spenningi :D
En ég vildi bara láta ykkur vita, ég nenni ekki að blogga meira!!!!
Bæ sæta fólk 8)8)

TINNA.

» 0 hafa sagt sína skoðun

12.06.2008 13:34:39 / Tinna

Flugfreyja?

Sælir vinir og bandamenn!!
Fyrir nokkrum vikum síðan sá ég auglýst í Fréttablaðinu að mig minni að Keilir væri að leita að flugþjónum í nám.
Og ég hugsaði að ég mundi aldrei komast inn í þetta.. Svo á hverjum degi sá ég þessa auglýsingu aftur og aftur og ég hugsaði nú jæja! Þetta er eitthvað sem ég vil gera.. Kannski ég ætti að prófa að sækja um..
Í gær var hringt í mig frá skólnum! =) Og í morgun mætti ég í viðtal í Keili. Fyrst var skriflegt test þar sem ég átti að svara nokkrum spurningum á nokkrum tungumálum svo voru 2 yfirflugfreyjur sem tóku mig í viðtal og ég átti að tala við þær á ensku og ég var spurð að allskyns spurningum! =) Rosa gaman!
Vona svo mikið að ég fái þetta!!
Þá mundi ég fá mér stúdentsíbúð í Keflavík.. Það er að segja ef Steini minn mundi vilja vera svo vænn að koma með mér:) Annars reddast þetta öðruvísi :)

Jæja pústurið ákvað bara að kveðja bílinn minn í bili og veljarljósið ákvað að láta taka eftir sér! Bíllinn búinn að gefa frá sér allskonar spreningarhljóð og allskonar töffarahljóð líka.. Held að hann se bara á gelgjuskeiðinu.. Alltaf eitthvað að honum .. :P

Eigum við að segja þetta gott í bili? :)

Kveðja Tinna sykurklessa! :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

03.06.2008 10:01:35 / Tinna

Bjórkvöld :)

Halló!
Ég er búin að gera mjög lítið seinustu daga! Aðalega bara djamma. Við stelpurnar tókum sunnudagsdjamm á sunnudaginn með einhverjum frönskum hermönnum.. Þa var skrautlegt:) Halla drapst kl.10 haha:D
Í gær fórum við all svakalega þunnar í bíó á Sex and the City - Góð mynd:) Og Katrín steinsofnaði eftir hlé og svaf út myndina hehe:D
Í gær keypti Sigga miðana okkar í Herjólf! Þá er að staðfest! Mín 1. þjóðhátíð er árið 2008 !! :D Og ég veit ekki um neinn sem er ekki að fara á þjóðhátíð! Allur ivnahópurinn! Allar vinkonur Katrínar ! Allir! :D Verður fjör :D Veit ekki einu sinni hvort ég hef komið til Eyja áður..

Föstudaginn seinasta þann 31.maí lést hann Sesar minn :(
Hann var 16 ára gamall og við höldum að hann hafi fengið heilablóðfall :(
Hann var jarðaður í Alviðru rétt hjá Selfossi við hliðiná henni Aríel okkar..


Þarna eru þau tvö saman í sólbaði.
En Aríel Sól lenti fyrir bíl fyrir 2 árum siðan..

Askur tekur solið eftir því að Sissí okkar se farinn held ég.. Hann er alltaf mjálmandi..


Þarna er Askur minn:) Litla barnið mitt:) Sem betur fer hef ég hann ennþá! :)

Jæja mín þarf að fara í vinnuna! Heyrumst síðar :)
Kveðja Tinna.

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.05.2008 14:54:06 / Soley

Fyrstu vinnuhelginni lokið

og hún gekk bara geðveikt vel! orðin alveg ýkt flink þarna uppfrá..  en djöfull var ég þreytt eftir helgina!! eg svaf fra 11 i gærkvoldi rumlega til kl 14 í dag..  djöfull var gott að sofa maður! :)

en já.. eg hef voðalega litið að segja eg ætlaði bara að koma með smá blogg svosem..

í dag eru 1 man og 5 dagar i flutning.. yayy... layta


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.05.2008 14:27:53 / Tinna

Óheppin..

Halló!
Núna er ég hjá múttu og var bara að klára sturtu og svona! Katrín er með útskrifarveislu kl.4 svo frændi Steina með útskrift kl. 6 svo náttlega bara eurovision! Nóg að gera í dag!
Og ég ætlaði að fara að keyra út á benstöð núna rétt áðan áður en ég færi heim..
En neii.. Ég varð bensínlaus hérna í götunni bara:s Og enginn heima nema ég og mútta en engir bílar..
Þannig það kemur í ljós hvenar ég næ að redda bensíni og get haldð áfram að taka mig tl fyrir allt ..
Jæja.. Ég ætla að reyna að redda mér!
C ya;)
Kveðja Tinna pæ ;)

» 0 hafa sagt sína skoðun

23.05.2008 10:11:45 / Tinna

Tinna bloggar!

Halló =D
Núna er ég bara að bíða eftir að mæta í vinnuna. Á að mæta hálf 11 ;)
Í þessar viku er ég eitthvað búin að vera að vinna hjá Dominos þar sem er mega vika og nóg að gerA;)
Var þar í gærmorgun að hjálpa við 200 pizzna pöntunn sem átti að senda til Keflavíkur!
Og ég var svo svakalega heppin að ég fékk að fara á rúntinn tl Keflavíkur. Ekkert smá mikill vindur!!
Ég var að spá í að stoppa hjá þér Sóley en ég var á launum þannig ég þorði því ekki..
Í gær kom Eva í heimsókn til mín á meðan Siggi og Steini voru á fótboltaæfingu og við spjölluðum út í eitt8)
Svo fannst henni svo ótrúlega mikið rusl hjá okkur að hún vildi endilega að við færum að taka til - Það vill sko enginn taka til í íbúðinni okkar Steina!
Þannig við ákváðum bara að byrja á svefnherberginu þar sem það er ekki hægt að labba þar inni það er svo mikið af fötum! :) Takk fyrir hjálpina sæta;)
Á þriðjudaginn læstum við Steini okkur út úr íbúðinni! Hehe.. Fengum fyrst lásasmið í gær til að opna fyrir okkur;)
Jæja svo er Eurovision á morgun.. 1.skipti sem við komumst upp úr undanúrslitum! :) Frábært..
Sem þýðir að það verður djammað og djúsað á morgun er það ekki? =D

Í dag erum við Steini að vinna til kl.4 .. Eftir vinnu ætlum við upp á hauga með allar þessar partý dósir og rusl og pizza kassa!! Fáum örugglega nóg af pening út úr þessum áfengisdollum!
Búið að vera allt of oft partý hjá okkur.. Og 1 risaparty þar sem nánast allir starfsmenn Dominos komu! Þá var alltaf svona 6 manns í röð á klósettið og það var ekki hægt að labba þarna inni það var svo allt troðið! Fólk byrjað að halda bara party úti á svölum! :)

Jæja!! Ég ætla að fara að leggja í hann :)

Kveðja Tinnfús;)

» 1 hafa sagt sína skoðun

22.05.2008 15:12:29 / Soley

Smá tilhlökkun

ég er að fara að vinna minn fyrsta vinnudag á morgun eftir 2 mánaða atvinnuleysi, ég er að fara að vinna hjá fríhöfninni, er komin með uniformið og Passann og svona.. voða gaman..

svo flytjum ég og arnar inn í íbúðina eftir 1 mánuð og 9 daga... og mig er farið að hlakka ekkert smá til þess..

í gær vann man utd evrópumeistarann og ég get svarið það að arnar var ekkert smá ánægður, kom frá paddys nánast raddlaus, og þaðan fórum við út í skúr til sigga og það var spilað pool og pílu og kjaftað og hlegið langt frammeftir.. held að við höfum verið komin heim eitthvað um hálf 3 leytið í  nótt..

Annars hef eg ekkert mikið meira til þess að blogga um.. ég er bara frekar nylega vöknuð og er hálf ómöguleg held ég bara.. hehe.. þannig að eg segi þetta bara gott í bili.. fínt að henda smá bloggfærslu hingað inn þarsem það er ekki bloggað neitt svakalega hérna.. höfum alveg staðnað í því ég og tinna =)


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.05.2008 22:02:27 / Tinna

Það gera allir mistök..

Halló..
Ég var pinku reið um daginn.. Eða ekki reið hehe:) En það eru margar hliðar á öllum málum.
Ég googlaði Jens Kjartansson sem er lýtalæknir hjá Domus Medica. Og þar voru sögur að 2 vikum eftir að einhver gella fekk ser silikon hjá honum hafi annað brjóstið orðið tvöfalt stærraog kenna lækninum um þetta allt saman..
Það er henni sjálfri að kenna. Ef stelpur eru að troða sér í gömlu brjóstarhaldarana sína eftir svona aðgerð er svo mikil hætta á síkingu og rugli. Líka að koma heim eftir svona aðgerð og sofa með óhrein sængurföt eða hvað sem er .. Það er svo mart annað á bakvið málið en silikonið sjálft. Erum líka að ræða um skurðaðgerð..
Svo voru einhver 2 önnur mistök þarna inni á google og einhver dómur á baki Jens vegna læknamistaka.
En svo skulum við líka hugsa.. Þetta er vinnan hans. Í vinnuni ykkar gerið þið ekki einhvern tíman einhver mistök?? Það fer bara ekki á netið af því það er ekki jafn stórt og að setja vitlaust álegg á pizzu. Þó svo þetta se ekki sama mál en það gera ALLIR einhvern tíman mistök.
Svo er Jens yfirlæknir á 6.hæð í Domus Medica og þegar ég fór í aðgerðina mína þá voru í kringum 6 manns sem tóku þátt í henni. Og það var meira að segja frænka hennar Sóleyjar minnar sem gekk frá minni aðgerð.. En af hverju á Jens bara dóm að baki sér en ekki hinir læknarnir sem tóku þátt í aðgerðinni?
Ég er allavega mjög ánægð með Jens. Svæfing og allt tók alls 45min. Var komin heim c.a klukkutíma eftir þetta! Jens hringdi í mig um kvöldið til að athuga hvernig ég hafði það, aðstoðarmaður hans sendi mér sms og athugaði hvernig mér leið, þeir eru frábærir:) Það er kominn 1,5 mánuður síðan og það sest varla í örin mín! Hann stóð sig eins og hetja og ég MÆLI MEÐ honum :) Þoli ekki endalausa gagnrýni um fólk á netinu! Verðum að hugsa aðeins lengra..
Sama hvað fólk gerir, það er ekki alltaf hægt að gera 100% rétt!

En jæja! Þetta voru 1. edrú helgin mín í langan tíma! :) Ógeðslega stolt! Við Steini erum bara búin að taka því rólega. Erum bæði búin að róa okkur all svakalega niður:) Öll kvöld eru nammi og video kvöld og alltaf kósí:D
Ekkert betra enn að vera með manneskjuni sem maður elskar:)

Í dag var ég bara að vinna svo fór ég beint heim og sótti Steina minn og við fórum í afmæli til Söru litlu frænku hans. Var alveg 5 ára í dag=)

Föstudag og laugardag fórum við að spila. Föstudagskvöldið var heima hjá Íbba og við spiluðum Meistarann. Og í gær vorum við heima hjá Óla að spila Gettu betur! :) Ég er alltaf jafn góð í þessum spilum! En við Eva áttum öll svörin í gær.. .. ;)

Jáá!! Bíllinn minn er ENÞÁ í viðgerð! OG ég sit uppi með bílaleigubíl - Svartan Suzuki Swift - með sprungið dekk og eyðir bensini eins og mother fucker!!  :( :(

Jæja ég er bara heima hjá múttu minni núna.. Spurning að dríga sig heim þar sem Steini minn gleymdi lyklum og fer að koma heim bráðlega.

Segjum þetta gott í bili:D

Kveðja Tinna :)


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.05.2008 12:18:27 / Tinna

BROSA er í hakki:(

Hæhæ!
Í seinustu viku lenti ég í 1.árekstrinum mínum w00!!
Allt framan á bílnum hrundi bara af.. Gaurinn sem ég klessti á þurfti að hlaupa ut á götu til að tyna upp hlutina af bilnum minum haha..
En ég var í 100% rétti og bíllinn er í viðgerð núna og ég er á bílaleigubíl.. Susuki shift eða eithvað ehhehe flottur sko..
Steini minn og Kolla systir ´ðattu afmæli 1.maí..
Grillparty hja mömmu Steina og við fórum i pottinn og poker:)
Svo í gær var massa party hja okkur<1
<ogeðslega gaman!!
Fórum á Ölver og við Eva tókum 2 lög og <Steini og Siggi tóku svona 50 lög heh:D
Heyriði ég er að blogga í lappa sem er óþægilegt! Blogga meira seinna.
Kristín  Tinna Aradóttir.

» 2 hafa sagt sína skoðun

30.04.2008 21:12:03 / Soley

Sóley Bloggar!

Jæja, ég er komin í leikinn aftur!

Núna er ég bara ýkt mikið að fara að taka mig á með bróðir minum og það verður sko tekið á því, við erum að tala um hreyfinu á hverjum degi má segja, ætlum abra að taka þetta með trompi og missa öll aukakílóin. og verða ykt fit og flott.

Ananrs er mest lítið að frétta af þessu atvinnulausa lífi, er orðin hundleið á því, heng heima o horfi a sjónvarp, bíð eftir að arnar komi heim og þá ríf eg mig upp og reyni að fá hann til að viðra mig :P

Bróðir minn er fluttur heim frá danmörku og það er ýkt næs að vera buin að fá hann heim

ég fer að búa eftir 2 mánuði og eg get ekki beðið!

og eg er hætt að djamma allavega þangaðtil innflutningspartyið verður

tendaforeldrar mínir eru bara við það að fara að flytja inn í nýja húsið sitt sem þau voru að byggja, lýtur ekkert smá vel út hjá þeim.

og ég er að verða fit og flott! Klárlega!

ég ætla ekki að drepa ykkur meira úr leiðindum þannig að eg ætla að segja þetta gott !:P

vona að þið höfðuð gaman af þessu! :*

kossar og knús




» 2 hafa sagt sína skoðun

19.04.2008 10:40:29 / Tinna

Tinna bloggar :)

Halló!!
SóleY! Þú suðar um að ég eigi að blogga svo loks þegar það skeður þá bloggar þú ekkert! Eigum við að ræða þetta eða?
Jæja! Steini minn og vinahópnum hans fannst voða fyndið hér áður fyrr að skrá sig í keilu og æfa keilu.
Viti menn.. Í fyrradag fór ég og Eva sæta að horfa á þá keppa og þeir komust áfram!! Hah :D
Þannig þeir kepptu aftur í gær og lentu í 2.sæti:D Til hamingju strákar:D
Ég og Eva erum að spá í að fara í bodja eða hvað sem þetta gamla fólks íþrótt heitir. ;) ;)
Í gær vorum við Steini bara róleg heima að horfa á video og hafa það kósí.
Í kvöld ætlum við Sigga að fá okkur í glas og kíkja mjög líklega á Celtic:D Það er eiginlega orðinn staðurinn okkar. Skiptumst reglulga á að vera föst á einhverjum stöðum..
Seinustu helgi var ég búin að plana að hafa edrú helgi.. En svo varð ekki..
Fimmtudagurinn:
Sóley og Arnar komu í bæinn og gistu þannig Sóley og Sigga og ég kíktum niður í bæ á Celtic og Hverfis. Voða gaman gaman:D Svo eftir á komum við Sóley heim til kallana okkar:D

Ég að mata Steina minn:D

Sigga og Sóley sætu;)

Sæta sæta.


Þar sem Sóley var ekki alveg að standa sig þá þurfti ég að mata Arnar líka:D

Á föstudeginum man ég ekkert hvað ég gerði..
Jú við Sigga og Katrín fórum í bæinn á Celtic og Kofan :) Rosa gaman!
Engar myndir frá því:S
Katrín mínb var að dimmitera í gær og kom mynd á mbl.is

Heiða, Katrín og Inga þarna:) Gaman!! :D
Og á laugardeginum bauð Dominos með í "All star"
Það er þegar allir verslunarstjórarir og framkvæmdastjórinn og eitthvað skrifstofufólk koma saman í Skeifuna og tóku öll vakt saman:D Rosa gaman!
Um 8 leitið var haldið af stað á Ruby T að borða! Fengum forrét og aðalrétt og gátum valið um kokteil eða eftirrétt!
Fékk frían bjór og risa stóran kokteil!!
Vorum á Ruby til eitthvað rétt fyrir 12.
Þá fórum við verslunarsjtórarnir niður í bæ og fengum okkur meira að drekka. Og enduðum á Celtic hehe:D Þar sagði trúbadorinn að ég væri með góða rödd hahaha sem er svo mikil lygi! Og sagði að ég mætti koma upp á svið að syngja og ég bara yes sir!
Sast hjá honum og söng einhver lög með honum! Svo þegar ég fór að dansa aftur þá sagði hann "Gefið gott klapp fyrir Tinnu" Og allir " TINNA! TINNA! TINNA!" Hehehehe án efa áhugaverðasta djamm sem ég hef farið á!
Hitti svo inderska konu sem býr samt í London sem bauð okkur öllum í glas ! Og hitti gamla nágranna minn úr Flétturimanum sem bauð mér líka í glas haha:D
Mujög skrautleg helgi:D
Svo endaði laugardagurinn með yndinu mínu honum Steina og félögum hans:D

Spurning hverskonar djamm ég mun enda með í kvöld?

Heyriði já ég er hætt á Dominos eða tek bara aukavaktir ef ég er beðin um það og tek eitthvað auka til að fá meira money ;)
Ég er orðin aðstoðarverslunarstjóri hjá Bossanova í Smáralind! Svaka skvísa:D
Tók 2.vaktina mína í gær og ég er strax buin að skrifa á mig skó haha! :s

Jæja vonandi se ég sem flesta í bænum í kvöld!
Lotz of love:D

Kristín Tinna Aradóttir. 


Sæti sæti:D

Sexy bitches:D


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.03.2008 16:53:15 / Tinna

Páskadjamm föstudaginn langa! :)


Þóra sæta:)

Uhh já!:)

Þóra og ég:)

Sigga, Þóra og Helga sætu:D

Ég með oggu ponsu lítið partý..

Þarna var ég ný búin að misstíga mig í háum hælum og hrynja niður tröppur. Er btw enþá ógeðslega bólgin og öll í sárum haha:D

Þóra sæta:)

Sigga baby!!

Ég í leigaranum :D

Jeii :)

Þóra sæta í leigaranum :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 14
Heimsóknir
Í dag:  1  Alls: 24047
Síðast innskráður
Ég var síðast inni þann 1 febrúar
Klukkan
Heimsóknir
Í dag:  1  Alls: 24047
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 1 febrúar
Könnun
Ætlar þú að djamma með Sóley og Tinnu á næstunni?